fbpx

Um okkur

Persónuleg þjónusta fyrir þig og dýrin þín

Dýralæknaþjónusta Kópavogs (DÝRKÓ) býður upp á persónulega, góða og faglega þjónustu á góðu verði í björtu og afar hlýlegu umhverfi. Lögð er áhersla á persónulega þjónustu þar sem einstaklingurinn er í fyrirrúmi og öllum gefinn sá tími sem þörf er á.

Dýralæknarnir

Dýrlæknar okkar eru með löggilt starfsleyfi
og bjóða upp á gæðaþjónustu.

Guðjón Sigurðsson

Guðjón Sigurðsson útskrifaðist sem dýralæknir frá Szent István University í Búdapest 2020.

Á námsárunum vann hann á sumrin hjá Dýralæknastofu Dagfinns og Dýralæknastofu Mosfellsbæjar. Eftir útskrift hóf Guðjón störf hjá Dýralæknastofu Dagfinns og síðar hjá Dýralæknastofu Reykjavíkur.

Guðjón stofnaði Dýralæknaþjónustu Kópavogs að Hamraborg 10 í janúar 2023.

Við tökum á móti öllum gæludýrum

Öll gæludýr, stór og smá, eru velkomin til okkar