Kæru vinir og gæludýraaeigendur. Á nýju ári færum við okkur um set. Eftir frábæran tíma í Hamraborg er komið að því að stækka við okkur til að geta sinnt ykkur og dýrunum ykkar enn betur.
Nýja stofan okkar er staðsett á Hjallabrekku 2. Þar höfum við hannað aðstöðuna frá grunni með þarfir dýranna í fyrirrúmi; meira rými, betra aðgengi og rólegt umhverfi sem stuðlar að vellíðan.
Við förum ekki langt! Þó við séum að flytja, þá erum við rétt handan við hornið. Nýja staðsetningin er í innan við 1 km fjarlægð frá gömlu stofunni. Leiðin er einföld: Þú keyrir úr Hamraborg, beygir inn á Brattabrekku og þaðan inn á Hjallabrekku. Við tökum vel á móti ykkur þar!
Hvenær flytjum við? Framkvæmdir standa yfir og við munum tilkynna nákvæman flutningsdag á Facebook og Instagram síðum okkar um leið og hann liggur fyrir.
Smelltu hér fyrir leiðsögn: Til að auðvelda þér ferðalagið höfum við sett upp beinan hlekk á Google Maps hér að neðan.



